Hrafnhildur Sig :-)

22.03.2008 13:17:52 / habbys

@

Páskarnir eru bara æði! Skíði - sól og leti hafa einkennt þessa páska og munu gera það áfram ;)

Nenni ekki að skrifa neitt hérna - ligg í sólbaði ;)

Lag dagsins er Lucky Man með The Verve, http://www.youtube.com/watch?v=ZyTO0jW8T2o

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 21:37:07 / habbys

Sumarið er alveg að koma!

Veðrið í dag var æðislegt! Er allveg að missa mig yfir hitanum, sólinni og logninu :)

Frábært að þetta Eurovision dót sé búið í bili. Amk er hægt að horfa á sjónvarpið núna á laugardagskvöldum. Var ekkert smá ánægð áðan þegar ég fattaði allt í einu að þetta væri búið. Fín lög sum hver og allt það en það er samt ekkert gaman að horfa á þetta aftur og aftur. Auk þess að heyra þetta á Rás 2 allan daginn.

Fram Akureyri í dag var bara fínasti leikur. Úrslitin segja ekki mikið um gang leiksins.
Svo er KFS Grótta á morgun.

Styttist í heimkomu! Hlakka ekkert smá til að fá að losna við helvítis byggingakranann og GÆSIRNAR. Þetta eru furðulegustu fuglar sem ég hef komist í návígi við - parkera sér í gönguveginum og hagga sér ekki þegar fólk nálgast, því jú þú ert fyrir ekki þær!

Lag dagsins: Sunny með Boney M.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 20:01:42 / habbys

Færsla er víst málið

Glory Glory Tottenham Hotspur!
Góður leikur í gær og Carling Cup var niðurstaðan :D
Er svona hér um bil að rifna úr monti með mína menn. http://www.telegraph.co.uk/sport/main.jhtml?xml=/sport/2008/02/24/ufnfinal124.xml

Annars var helgin bara fín, samanstóð af Kringlurölti sem og fínu Eurovision partý hérna í Ljósheimunum. Keppnin endaði nákvæmlega eins og ég hefði best á kosið sjálf. Eurobandið komst áfram og átti litli Dalvíkingurinn svo skilið að fá að fara til Serbíu. Um að gera að senda fólk út sem hefur áhuga á keppninni.

Það er btw ekkert rosalega gáfulegt að hjóla upp brekku í snjó í Reykjavík! Niðurstaða gærdagsins. Saltdrullan gerir það að verkum að maður kemst eiginlega ekki neitt áfram og afturdekkið spólar bara. Það hafðist samt að hjóla niður í Eggertsgötu og uppeftir aftur. Tók samt tæplega 100% lengri tíma en venjulega + það að ég tók eina kríu áður en ég gat farið heim aftur (allveg óvart)..

Lag dagsins: Leave Me Alone [i'm lonely] með Pink




» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 17:48:46 / habbys

Er blogg málið?

Nenni hálfpartinn ekki að henda inn upplýsingum um daginn og veginn hérna. Fólk getur bara komið í heimsókn eða hringt ef það vill.
Reyndar getur ekki hver sem er hringt í mig en svona er þetta bara. Það er gert viljandi svo "fræga" fólkið geti ekki frætt mig um alls kyns rugl, þar á meðal um augndropana sína! Svo fólk verður annað hvort að vera í VIP crew eða hreinlega spurja um númerið.
Spurningin er hvort það nenni einhver að lesa þetta bull eða ekki.
Blogcentral-ið er búið að breytast helling svo það er spurning hvort sú breyting sé að hinu góða eða illa.

Bis bald ?



» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 19:43:36 / habbys

Gottskálk hinn grimmi

Var að glugga í Þjóðsögur Jóns Árnasonar og fann þennan skemmtilega kafla

Gottskálk biskup grimmi var hinn mesti galdramaður á sinni tíð; tók hann upp aftur svartagaldur, er ekki hafði tíðkast síðan í heiðni, og skrásetti galdrabók þá, er kallaðist Rauðskinna. Var hún skrifuð með gullnu letri og að öllu hin skrautlegasta; rituð var hún með rúnastöfum eins og allur galdur. Þessarar bókar unni biskup ekki neinum eftir sinn dag og lét þess vegna grafa hana með sér, og engum kenndi hann alla kunnáttu sína. Þess vegna var hann öllum svo skæður í málum, að hann gat glapið minni og huga manna og komið þeim til að gjöra það, er hann gat gefið þeim sakir á.

Í fyrstu keypti hann njósnarmenn til að komast eftir, hvort menn ætu kjöt á langaföstu; en svo fór að lokum, að enginn vildi verða til þess að halda njósnir fyrir hann. Einn dugði þó best, enda hafði biskup kennt honum kukl og þar á meðal að bregða yfir sig hulinshjálmi; en þó kenndi hann honum ekki meira en svo, að hann hefði í öllum höndum við hann. Einu sinni á langaföstu kom njósnarmaður þessi að bæ bónda nokkurs og lagðist á baðstofugluggann; var dimmt mjög úti, svo njósnarmaður gáði þess ekki eða þótti þess ekki þurfa að bregða yfir sig hulinshjálmi. En bóndi sá meira fram fyrir nefið á sér en nokkur vissi; sá hann, þegar njósnarmaður kom og lagðist á gluggann; spurði hann þá konu sína, hvar sauðarsíðan væna væri, sem þau hefðu leift á sprengikvöld. Konan varð hrædd og spurði, hvort hann vissi ekki hvað við lægi; en hann sagðist ekki hirða um það og skipaði henni að sækja síðuna. Þorði þá konan ekki annað en gjöra það. Tók þá bóndi við síðunni og mælti: "Þetta er góður og feitur biti;" tók síðan upp og oddmjóan hníf og rak í gegn um síðuna. Ljósið logaði dauft, en njósnarmaður grúfði sig niður að glugganum til að sjá allt sem glöggvast. Bóndi fór tómlega að öllu; bar hann síðuna hátt og virti hana fyrir sér á alla vegu, en hinn sá ekki hnífinn. En þegar minnst vonum varði, snýr bóndi sér að glugganum og lagði hnífnum, er stóð í síðunni, gegnum skjáinn og í auga komumanns, svo á kafi stóð, og mælti: "Berðu þenna bita þeim, er sendi þig." Njósnarmaðurinn rak upp hljóð og féll ofan. Hafði bóndi af honum sannar sögur, og dó hann síðan við mikil harmkvæli. Bóndi tjáði mál sitt fyrir Jóni lögmanni Sigmundssyni. Komu þeir að biskupi varbúnum, áður en hann hafði frétt afdrif sendisveins síns, og þó hann þrætti þess, að hann væri valdur að þessu, sá hann þó ekki annað ráðlegra en að gjalda bónda mikið fé, en Jón lögmaður lét dæma þá alla réttlausa, er lægju á gluggum.

Frá þeim tíma gat biskup ekki neytt sín öðruvísi til að hafa fé af bændum en að hræða þá til útláta, þegar hann sá það af fjölkynngi sinni, að þeir hefðu verið slakir á föstuhaldinu, og drepa fyrir þeim fénað með göldrum, ef þeir létu ekki allt liggja í hans skauti. Aldrei ýfðist biskup þó við bónda þann, er drap njósnarmann hans, því hann vissi, að þar kom hann ekki að tómum kofunum, en Jón lögmann ofsótti hann, frá því hann studdi mál bónda, því að hann kunni ekkert fyrir sér, og hætti ekki, fyrr en hann hafði gjört hann fjárlausan. Gramdi Jón sig þá í hel, en stefndi biskupi á dánardegi fyrir guðs dóm; en við því gat biskup ekki séð, þó fjölkunnugur væri, því þá tók annar sterkari í taumana.

 

Fengið lánað af : http://www.snerpa.is/net/thjod/gbisk.htm þar sem ég nennti ekki að pikka þetta inn.


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 17:10:14 / habbys

Síðasta færlsa þessa árs

Sit inni í stofu og horfi dolfallin á Manuel Barrueco! Maðurinn er þvílíkur snillingur

Langar bara til Kúbu núna

En jæja nei ég fer bara til Reykjavíkur í mesta lagi.

 

Jólafríið HEIMA er frábært. Hef hitt helling af fólki og sofið meira en heilbrigt getur talist. Skrapp austur í Mývó í gær í Lónið með tveimur "innfæddum" og sá þriðjii bættist við í sveitinni.

Í dag er nákvæmlega 22 gráðum hlýrra en var fyrir sólahring síðar. -15° í Mývó í gær og núna er +7°C skv textavarpinu.

Lónið var frábært. Mikið flottara en Blái samkeppnisaðilinn þarna fyrir sunnan. Segir bara að það er allt best hérna norðan heiða 

 

2007 er búið að vera meira árið, vægast sagt! Árið byrjaði ekkert sérstaklega en skánaði til mikilla muna undir það síðasta. 

Ég trúi því hreinlega ekki að ég hef eytt því nánast öllu í Reykjavík. Skrapp reyndar heim yfir páska auk nokkurra helga en já samt. SEXTÁN mánuðir í borg óttans í heildina - jahh sko til. Er orðin nokkuð mögnuð núna að rata, eða það hefur amk skánað mikið og þá sérstaklega síðustu vikuna fyrir jól. Þræddi þá alla útkjálka höfuðborgarsvæðisins og það gekk upp

Fyrstu mánuðirnir einkenndust að lestri - reyndar fyrstu 8 mánuðirnir. En svo tók annað mikið skemmtilegra við. Skipti um vinnu og upp úr því fór að rætast úr hlutunum

Furðufuglar og vandamenn hafa átt mikinn þátt í að lita árið hinum ýmsu litum.

 

2008 verður vonandi hið fínasta ár :) Það verður bara spennandi að sjá hvað það felur í skauti sér en ég hef það á tilfinningunni að það verði viðburðarríkt mjög

 

Jæja, það er komið gott í bili af einhverju bulli sem enginn nennir hvort eð er að lesa 

Þangað til næst, hafið það gott og eigiði gleðilegt ár :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 21:21:03 / habbys

Einhæfni

Segir maður einhæfur eða einrænn kannski?

Pæling

Reyndi áðan að setja eitthvað annað í MediaPlayerinn en InRainbows með mínum kæru vinum í Radiohead en nei það var hreinlega ekki að gera sig. Og já iTunes er heldur ekki að gera sig

Þetta sýnir bara að sumir eru mjög vanafastir. Veit ekki hvort það sé gott eða slæmt - vil fá komment á þennan takk


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 17:16:37 / habbys

Morkn

Síðasta færsla var orðin frekar þreytt, enda lítill tími til að skrifa eitthvað auk þess er ekkert um að vera. 

Fór á Grettir í Borgó með UBB & MBB. Þetta var bara fínasta leikrit, endirinn örugglega bestur - verst að missa af honum og sumir tóku ekkert eftir því!

17 dagar í jólafríið!

Var í Reykjavík um helgina sem er tilbreyting. Var á Akureyri helgina þar á undan og í Eyjum þar áður. Um að gera að vera út um allt.  

Reykvíkingar eru ekki allveg að standa sig í jólaskrautinu. Þeir eru þó aðeins að koma til - það var ekkert skraut í fyrra. Eða þá ég að venjast aðesin viðbrygðunum frá brjálæðinu í hverfinu mínu. Það er kannski erfitt að toppa fólkið í Flögusíðu í seríumagni. Hef tekið þann pólinn í hæðina að vera Reykvíkingur í ár og skreyta ekki neitt. Fólk má þá bara halda að ég sé í sértrúarsöfnuði eða útlendingur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 15:24:40 / habbys

Sunnudagur aftur

Hey snilld - blogga greinilega bara á sunnudögum.

Var að koma úr nýju dótabúðunum og ég segi bara SJITT! Gargandi börn og öskrandi foreldrar allir hlaupandi um eins og þeim sé borgað fyrir þetta. Talandi líka um hvað nýja húsið þarna í Kópavoginum er hrikalega ljótt. Er formlega hætt að keyra Reykjanesbrautina nema í neyð. Fæ alltaf kjánahroll þegar ég keyri þarna framhjá - bæði hvað nýja Smáratorgshúsið er ljótt og líka hvað nýja IKEA og þarna hin stóru húsin þarna rétt hjá eru stór og klunnaleg. Þetta er hrein og bein sjónmengun. Þessu taka ÍSLENDINGAR þátt í! Þeir skapa markaðinn fyrir þetta.

Gerði svosem ekkert markvert um helgina. Ætlaði til útlanda en því var frestað um viku eða það fer bara eftir veðri og vindum. Fer svo norður í laufabrauð þarnæstu helgi. Jólin í fyrra voru handónýt - missti af laufabrauðinu og öllu tilstandinu. Jólahlaðborð helgina þar þar á eftir. Svo var eitthvað í millitíðinni sem ég man ekki hvað var.

Jólin eru að lenda í Reykjavík - það er búið að skreyta alla ljósastaurana í Hafnafirði amk frá Reykjavíkurvegi að Firði niðri í miðbæ. Reyndar er ekki búið að tendra ljósin ennþá en það kemur að því. Í október var komið hellingur af jóladóti í Kringluna og Hagkaup er allveg að missa sig í jólaskrautinu. Hef svosem ekki séð mikið jólaskraut hérna í hverfinu, ekki nema í einum tveim gluggum. Einhver setti reyndar upp jólatré í byrjun október.

Hef allveg meira en nóg að gera á daginn - veit ekkert hvað verður að tímanum eiginlega. Fer út á morgnanna og er yfirleitt ekkert komin heim almennilega nema bara rétt til að fara að sofa á kvöldin. Það er án spaugs kominn NÓVEMBER. Ég er svo ekki að fatta hvað tíminn líður hratt. Finnst eins og það hafi sé ágúst í mesta lagi en nei nei. Síðan ég flutti í borgina hefur tíminn horfið bara, FIMMTÁN mánuðir!


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 16:04:04 / habbys

Sunnudagur

Hef ekkert nennt eða getað skrifað neitt hérna heillengi. Það eru gaurar að bora upp og undir götuna heima. Er ekki neitt rosalega ánægð með þá. Húsið nötraði allt föstudagskvöldið að miðnætti og þeir byrjuðu svo aftur á laugardagsmorgun fyrir kl 9! Skil svosem að þeir nenna ekki að vera að þessu í umferð en samt... Jæja - svona er þetta

 

Barði er svalur.

 

Er búin að fara á tvo handboltaleiki um helgina og ég man ekki allveg hvernig þeir fóru :p 

 

Sit á besta stað í Hafnarfirði og stalst í tölvuna þar ;) Kemst ekkert á netið heima amk ekki síðustu daga.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 22:36:15 / habbys

Þriðjudagur

Reykvíkingar eru snargeðveikir. Um leið og sést snjór fá þeir taugaáfall og rjúka út á dekkjaverkstæði. Þetta er allveg bíó. Reyndar fékk ég að hanga í röð í rétt rúma 2 tíma í dag, þ.e. frá korter í 8 til rúmlega 10, fyrir utan eitt slíkt. Var á vinnubílnum og ég tók ekki í mál að keyra annan dag á honum svona dekkjalausum. Nennti ekki að fara með hann í gær því röðin var þá svona 10 sinnum verri en hún var í dag. Fólkið var nú samt allveg sallarólegt í röðinni. Furðulegt að fólk skuli nenna að eyða heilum degi í röð. Sumir reyndar fóru út í sjoppu og keyptu sér snakk og lesefni! Þetta var frekar fróðlegur dagur.

Einhver hefði nú bara splæst í nýjar felgur og sleppa því að standa í þessu veseni, en svona er þetta. 

Sit hérna og var að koma inn úr sundi. Það er samt ógeðslegt veður - rigning og hvasst. Eins og alltaf.

Komst að því í dag að það er ekkert neitt mjög gáfulegt að fara út að hjóla niður brekkur þegar það er svell og rigning í ofanálag. Það þýddi ekkert að bremsa! 

 

Það var ekkert smá gaman að komast heim um helgina - eins og alltaf reyndar. Skírnin gekk bara vel fyrir sig og sannað hefur verið hver er flottasti presturinn á Akureyri ;) Það var furðulegt að leggja af stað í sól og sumaryl á Akureyri og keyra í frost, snjó og hálku. Þetta var bara háklassa vetur.

 

HVAÐ ER MÁLIÐ Á AKUREYRI MEÐ SÍÐU? Heyrði í fréttunum í dag að það ætti að taka hitann og rafmagnið AF húsinu ef hann myndi ekki fjarlægja húsið af lóðinni! KEMUR! 

http://akureyri.net/?cat=3&action=detail&item=4560

Þetta er bara leiðindarmál. Það fer mikið úr þorpinu ef/þegar Síða fer! Hvað gerir maður nú á Aðfangadag þegar vantar eitthvað í matinn... 


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 16:09:32 / habbys

Styttist í heimkomu

Jey þrátt fyrir smá seinkun kemst ég norður á endanum :) Kem annaðkvöld ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 20:29:08 / habbys

Aftur helgi bráðum! Hvað er í gangi

Jáhá það er FIMMTÁN ára peyji í Kastljósinu með lífsreynslusögur af því hvernig sé að vera gay í grunnskóla. Það er svosem allt í góðu en ég man svosem ekki til þess að fólk hafi mikið verið að pæla í því hver væri gay og hver ekki á þessum árum. Svo var krakkinn spurður hvort hann væri SVEKKTUR yfir því að mega ekki GIFTAST Í KIRKJU! Það munar ekkert um það.. Man ekki að ég hafi nokkurn tíma pælt í giftingu og er ég nú 6 árum eldri en krakkinn.  Jæja þetta er bara spes.

 

Kaffiboð í Ljósheimunum eftir vinnu fyrir þá sem eru fastagestir á eYðistorginu. Magnaður staður - er að missa mig yfir því hvað það eru alltaf margir þarna ;) Það er alltaf ALLT AÐ SKE þarna eins og maðurinn orðaði það svo vel í Sunnuhlíð forðum daga á FM 98,7 :D

 

Vonast svo til að komast heim um helgina - er að verða svo homesick allt í einu. Það er samt eitthvað babb í bátnum en það kemur í ljós á morgun hvernig það fer. Aulafólk að þurfa að verða veikt allt í einu ohhh.

 

Það verður spennandi að fá að vita nafnið á litla ;)

 

Ótrúlega HATA ég KB banka so sorry en karlingar hexið sem hringdi í mig áðan var ekkert smá grömpí. Ég var náttúrulega bara fyrir henni og algjör hálfviti að nenna ekki að ná í kortið sem var troðið inn á mig ;) Núna nenni ég pottþétt ekki að ná í það :p Oftast þegar fólk fer að nöldra þá verður útkoman þveröfug. 

 

OG JÁ Í dag er 23.október árið 2007 og ég sá JÓLASKRAUT í Hagkaup í kringlunni. Reyndar sá ég massívt jólatré fyrir utan Húsasmiðjuna í gær en það er svosem annað. Þessi Húsasmiðja er líka úti í sveit eða svo gott sem - við Bása.

 

Lenti í HAGLÉL í Hafnafirði seinnipartinn takk fyrir pent! Keyrði eftir Kringlumýrarbrautinni niður til Reykjavíkur og þar var SÓL, Þar hafiði það :) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 22:18:35 / habbys

Morkin!

Nýja vinnan er bara fín - hafði af fyrstu vikuna stórslysalaust ;) Villtist reyndar eitthvað smávegis en það fylgir víst Akureyringi á rúntinum í Höfuðborginni.

Fór í gær eftir vinnu á magnaða tónleika í Fríkirkjunni. Hafði ekki hugmynd um hvaða band var að spila enda kom það bara skemmtilega á óvart. Orgel-leikurinn stendur án efa uppúr ;). Þaðan var leið haldið í Skífuna þar sem hlustað var á Pétur Ben, Mugison og bróður Leibba. Eftir tónleikana var farið í 10-11 og keypt Skyr sem er varla til frásögu færandi nema fyrir þær sakir að MA ingur dró okkur Unni í einhverja skemmu í partý þar. Auðvitað var skyrið bara hálft komið niður og var ég mjög hörð með skyr í hönd :P Einhversstaðar í millitíðinni var farið í 4-U partý sem var bara fínt - æði að hitta alla aftur :)

Maðurinn í Kraftgallanum og gallajakkanum utanyfir fær bjartsýnisverðlaun dagsins. 

Það styttist í að Spánarfararnir lendi á Akureyrarvelli :) Það verður bara gaman um næstu helgi að fá ferðasöguna :) Styttist mikið í að litli verði skíður. Ekki nema rétt tæp vika..

 

STYTTIST Í NÆSTU HEIMKOMU! :) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 08:46:12 / habbys

Geimverur?

http://www.mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1296482

Það er bara fyndið að fylgjast með Ameríkönum. Skil ekki hvaða máli skiptir hvort það sé líf á öðrum plánetum eða ekki. Vísindamenn virðast ekkert ætla að gefa sig með þetta. Skrítið samt að það hefur ekkert verið minnst á UFO lengi ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15